Verkfall félaga í Bandalagi háskólamanna á Landspítalanum, sem á morgun hefur varað í mánuð, er farið að hafa mjög alvarleg áhrif á þjónustugetu spítalans; rannsóknir tefjast og biðlistar eftir aðgerðum lengjast - og fyrir vikið fá sjúklingur í áhættu ekki nægilega umönnun.
Sveinn Guðmundsson varaformaður Hjartaheilla segir í Morgunblaðinu í dag að hjarta- og æðasjúkdómar fari ekki í verkfall; þeir haldi áfram "fram í rauðan dauðann." Hann segir að verkfallið, meðal annars hjá geislafræðingum, hafi áhrif á ýmsar rannsóknir sem séu nauðsynlegar þegar menn kenna sér meins, eins og til dæmis hjartaþræðingar. Hann getur þess að rannsóknir sýni að 13 til 14% sjúklinga deyi ótímabærum dauðdaga á biðlista eftir hjartaþræðingum. Þegar verkföll dynji á lengist biðlistar og því segi tölfræðin að fleiri deyi ótímabærum dauðdaga á biðtímanum.
Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands segir við blaðið að verri þjónusta bitni á lífsgæðum fólks sem þurfi að búa við kvíða og hugarangur þar sem það fái ekki meðferðir og rannsóknir sem nauðsynlegar séu.