Stjórnvöld stefna að því að ljúka við lagasetningu á verkföll heilbrigðisstarfsmanna í dag, en þingfundir gærdagsins einkenndust mjög af töfum, ósamkomulagi og diguryrðum stjórnarliða og stjórnarandstæðinga hvor í annars garð.
Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir að miðað verði við að lagasetningin verði klár í dag. Fundur hófst í nefndinni klukkan hálfníu i morgun og er búist við því hann standi fram yfir hádegi. Á fundinn munu helstu hagsmunaðailar deilunnar mæta, jafnt formenn samninganefnda Bandalags háskólamanna og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, formenn félaganna og lögfræðingar þeirra.
Lögin gera ráð fyrir frestun verkfallanna til 1. júlí og kemur það í hlut gerðardóms að ákveða laun umræddra hópa hafi samkomulag í kjaradeilunni ekki náðst fyrir þann tíma.