Allt eins er búist við því að til fjöldauppsagna komi á næstu dögum í röðum heilbrigðisstarfsfólks á Landspítalanum og fleiri sjúkrastofnunum eftir að lög voru sett á verkföll þess í fyrrakvöld.
Verkfallslögin voru samþykkt af meirihliuta Alþingis síðla laugardags og hófu þeir starfsmenn, sem verið höfðu í verkfalli, störf að nýju á miðnætti í fyrrakvöld. Að sögn heimildarmanna á Landspítalanum, sem Hringbraut hefur verið í sambandi við um helgina, var tónninn það þungur í fólki í gær að vart verður til annars jafnað í kjaradeilum síðustu ára.
Lögfræðingar á vegum Bandalags háskólamanna munu reyna á lagalega hlið deilunnar á næstu dögum, en þar er helst horft til þess að margar þeirra stétta sem verið hafa í verkfalli hafa \"ekki ógnað öryggi nokkurs manns,\" eins og það var orðað af einum fulltrúa í samninganefnd BHM um helgina.
Eftir stendur samt alvarleiki málsins; ógnin um fjöldauppsagnir sem vofir yfir samninganefnd ríkisins á næstu dögum sem hefur hálfan mánuð til að ná samningum við ríkisstarfsmenn, en eftir það mun gerðardómur taka til starfa.
Innan stéttarfélaga heilbrigðisstarfsmanna er hins vegar meiningin þess; hvað segja margir upp á dag, næstu daga?