Verkfallshnúturinn hefur herst

Fátt eða ekkert virðist geta komið í veg fyr­ir að verk­fall þúsunda rík­is­starfs­manna skelli á frá og með miðnætti í kvöld, en það mun hafa lamandi áhrif á margar þjónustustofnanir ríkisins, ekki síst Landspítalann.

For­svars­menn dei­lenda í kjara­deilu rík­is­ins og SFR, sjúkra­liða og lög­reglu­manna eru svart­sýn­ir á að tak­ast muni að leysa hnút­inn á sátta­fundi sem boðað er til kl. 10 fyr­ir há­degi: \"Þetta er ansi þungt og ber mikið í milli,“ seg­ir Gunn­ar Björns­son, formaður samn­inga­nefnd­ar rík­is­ins við mbl.is í dag og Árni Stefán Jóns­son, formaður SFR tek­ur þar í sama streng og seg­ist ekki gera sér mikl­ar von­ir um ár­ang­ur af fund­in­um í dag ef mið sé tekið af gangi deil­unn­ar að und­an­förnu.

Í fréttinni segir að ríkið eigi ósamið við tæp­lega 60% starfs­manna sinna og er haft eftir Gunnari að ef samið yrði um sam­bæri­leg­ar hækk­an­ir og í úr­sk­urði gerðardóms í máli BHM og hjúkr­un­ar­fræðinga, hefði það al­var­leg­ar af­leiðing­ar og end­ur­skoðun kjara­samn­inga á al­menna markaðinum yrði í al­gjöru upp­námi í fe­brú­ar.

Stétt­ar­fé­lög­in vilja fá sam­bæri­leg­ar hækk­an­ir og gerðardóm­ur úr­sk­urðaði og vísa líka til samn­inga rík­is­ins við Starfs­greina­sam­bandið í sein­ustu viku. Að mati Efl­ing­ar fela þeir í sér tæp­lega 30% hækk­un. ,,Það er ná­kvæm­lega sá laun­ar­ammi sem við höf­um verið að kalla eft­ir, seg­ir Árni Stefán. Gunn­ar seg­ir þessa samn­inga ekki sam­bæri­lega.