Verkalýðsfélag Grindavíkur mun funda annað kvöld um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. Félagið áætlar að fylgja fordæmi Eflingar og VR og beina aðgerðum sínum að ferðaþjónustunni. Bláa lónið er langsamlega stærsti ferðaþjónustuaðilinn á svæði félagsins. Vísir.is greinir frá.
Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, segir marga félagsmenn sína tilbúna í verkfall auk þess sem verkfallssjóður félagsins standi vel og félagið því í stakk búið til að grípa til verkfalla. „Já, já ég heyri það alveg að menn eru tilbúnir ef á þarf að halda að fara í aðgerðir. Það eru allir til í það sýnist mér, eða svona allflestir,“ segir hann í samtali við Vísi.
„Við erum bara á sama róli og hin félögin. Við munum væntanlega vera í ferðaþjónustugeiranum. Bláa lónið er langstærsti aðilinn. Menn geta kannski reiknað út frá því,“ bætir hann við.
Áform og dagsetningar verða rædd á fundi félagsins annað kvöld og ákvörðun verður tekin í framhaldinu. Mun félagið svo kynna fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sínar síðar í vikunni.