Verkfall sjómanna verður íslandi dýrt

 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra kynnti sl. föstudag skýrslu. Skýrslan leggur mat á þjóðhagslegan kostnað af verkfalli sjómanna. Vinnurhópur vann að skýrsluni ásamt sérfræðingum frá Íslenska sjávarklasanum.

Áhrifa verkfallsins gætir með nokkuð misjöfnum hætti hjá sjávarútvegsfyrirtækjum. Standi verkfall fram á loðnuvertíð og veiðar falla niður mun þjóðarbúið verða af tekjum sem líklega verða taldar í þúsundum milljóna króna.

Vinnustoppið nú er hvorki algjört né langvarandi. En engu að síður mjög víðtækt og hefur dregist á langinn þannig að áhrifa þess gætir nú talsvert víðar í hagkerfinu en á fyrstu vikum verkfallsins.  

Eftir því sem verkfall dregst á langinn er líklegra að það hafi áhrif á rekstrarniðurstöður árins 2017 ekki aðeins í sjávarútvegi.

Gróflega áætlað tekjutap ríkissjóðs vegna lækkaðrar skattagreiðslu og tryggingargjalds er alls tveir og hálfur milljarður króna. 

Gróflega áætlað tekjutap sveitarfélaga vegna lækkaðra útsvarsgreiðslna er rúmur milljarður króna. 

Heildaráhrif verkfallsins til 10.febrúar 2017 á tekjur ríkis og sveitarfélaga nema því rúmum þremur og hálfum milljörði króna.

Mestar áhyggjur hafa ferskfiskframleiðendur af mörkuðum fyrir íslenskar sjávarafurðir. Hættan á að missa hluta þessara markaða annað eða þá að verð þar lækki til lengri tíma er mikil.

Nánar á www.stjornarrad.is