Verkfall félagsmanna Eflingar, sem starfa hjá Reykjavíkurborg, mun hafa áhrif á rúmlega 3.500 leikskólabörn og um 1.650 notendur velferðarþjónustu.
Verkfallið á að hefjast klukkan 12:30 í dag og standa yfir þar til á miðnætti fimmtudaginn 13. febrúar. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg mun sorphirða frestast þessa daga þar sem tæming á að fara fram.
Samkvæmt frétt mbl.is um málið sagði Elísabet Ólafsdóttir, skrifstofustjóri ríkissáttasemjara í gær að það væri mat sáttasemjara sem sér um málið að það myndi ekki skila miklu árangri að halda fundinn sem halda átti í gær með samninganefnd Eflingar og Reykjavíkurborgar. Hún sagði að undirbúa þyrfti hann betur. Þá sagði Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar að samninganefnd félagsins væri sátt við frestun fundarins og að þau treystu mati sáttasemjarans.