Félagsmenn Eflingar sem aka Strætó og vinna fyrir Almenningsvagna Kynnisferða hófu verkfall í morgun. Þar lögðu þeir niður störf frá klukkan sjö til níu. Einnig munu þeir leggja niður störf klukkan 16:00 til 18:00 síðdegis. Vinna verður lögð niður á virkum dögum á þessum tímum frá 1. apríl til og með 1. maí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eflingu.
Vinnustöðvun gengur yfir leiðir númer 12, 14, 15, 16, 17, 21, 24, 28, 35 og 36. Þessar leiðir munu stöðva á ofangreindum tímum á þremur stærstu stoppistöðvunum; Hlemmi, Hamraborg og Mjódd.
Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, segir í samtali við RÚV að fulltrúar Kynnisferða vinni að því að koma vögnunum á rétta staði svo allt gangi eftir áætlun þegar vagnarnir fara aftur á leið klukkan níu og að um mikið púsluspil sé að ræða.
Hann segir Strætó engar leiðbeiningar hafa fengið frá Eflingu um hvernig ætti að framkvæma verkfallið og skipulagið eftir því, enda verkfallsaðgerðir nýjar af nálinni hjá Strætó.
„Það voru svona þrír í Mjóddinni sem voru ekki meðvitaðir um verkfallið,\" bætir Guðmundur við. Flestir farþegarnir hafi þó getað nýtt sér aðrar leiðir til að komast ferða sinna.