Verkfall sjúkraliða skollið á

Nú klukkan átta í morgun skall verkfall sjúkraliða á Landspítalanum á. Einnig er verkfall hjá Heilbrigðisstofnunum Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Rúv hefur eftir formanni Sjúkraliðafélags Íslands  að það miði í viðræðum en í gær stóð yfir 11 klukkustunda samningafundur  fram undir miðnætti.

Verkföllin í dag standa til klukkan 16 og ef ekki semst um verða þau endutekin á sama tíma á morgun og miðvikudag.

Samninganefndir sjúkraliða, lögreglumanna og SFR hitta samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara klukkan eitt í dag.