Fjórtándi dagur samningaviðræðna SFR, sjúkraliða og lögreglu við ríkisvaldið er runninn upp, en þrátt fyrir að setið hafi verið við fram á rauða nótt hefur lítið þokast í samkomulagsátt. Nýr fundur hófst klukkan 09:00 í morgun.
Samningafundurinn í gærdag varði samfellt í fjórtán tíma og lauk ekki fyrr en hálfþrjú í nótt. Hann skilaði ekki tilætluðum árangri og því brestur aftur á í dag tímabundið verkfall sjúkraliða á Landspítalanum og á Heilbrigðisstofnun Austurlands og Suðurnesja og stendur yfir til klukkan fjögur í dag. Það hefst svo aftur klukkan 08.00 á morgun hafi ekki samist.