Verkfall frestar nauðungarsölum

Ótímabundin vinnustöðvum félagsmanna í Bandalagi háskólamanna, BHM, hefur víðtæk áhrif í samfélaginu og hefur meðal annars orðið til þess að afgreiðsla mála hjá sýslumannsembættum refst úr hófi fram. Verkfallið hófst 7. maí og hefur þegar hækkað staflana að miklum mun á borði embættanna.


Meðal áhrifa verkfallsins er að á þriðja hundrað nauðgungarsölum hefur verið frestað vegna verkfallsins. Þá gengur úrlausn meðlagsmála miklu hægar en gengur og gerist og það sama á við um faðernismál, sambúðarslitamál, forsjárbreytingar og hjónavígslur.


Þúríður Árnadógttir lögfræðingur hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík segir í Morgunblaðinu í morgun að það taki nokkrar vikur að vinda ofan af uppsöfnuðum vanda og enn lengri tíma dragist verkfallið á langinn.