Verkfall bhm dregst á þriðja mánuð

„Á þessu stigi eru þetta al­gjör­lega óút­færðar hug­mynd­ir," sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Bandalags háskólamanna eftir fund sinn og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í morgun með fulltrúum stjórnvalda, en þar var hugað að stofnun sáttanefndar í kjaradeilu þessara aðila.


Bæði háskólamenn og hjúkrunarfræðingar munu ræða hugmyndir stjórnvalda um sáttanefndina í sínum ranni í dag, en Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur undir með Þórunni og segir fátt nýtt hafa komið fram á fundinum í morgun.


Það er því útlit fyrir að verkfall haldi áfram á þriðja mánuð hjá háskólamönnum, en réttir tveir mánuðir eru í dag frá því að verkfall þeirra hófst. Hjúkrunarfræðingar hafa verið í verkfalli öllu skemur, eða í hálfa aðra viku, en miklu munar enn á tilboði samninganefndar ríkisins og kröfum þeirra við samningaborðið; ríkið bíður 18% launahækkun á þremur árum, hjúkrunarfræðingar krefjast minnst 30% launahækkunar svo þeir haldi í við viðmiðunarstéttir sínar.


Fundinn í morgun sátu, auk fulltrúa BHM og FÍH, efna­hags­ráðgjafi for­sæt­is­ráðherra og skrif­stofu­stjóri í fé­lags­málaráðuneyt­inu sem greindu frá hug­mynd­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar um skip­un sátta­nefnd­ar.


Ekki er búið að skipa í nefnd­ina, en skip­an henn­ar er háð því að deiluaðilar fall­ist á að nefnd verði skipuð.


„Í fljótu bragði verður ekki séð að svona nefnd geti gert eitt­hvað um­fram það sem rík­is­sátta­semj­ari ger­ir. Það ligg­ur auðvitað fyr­ir að deil­an er í hnút því rík­is­valdið vill ekki færa sig nær okk­ur," sagði Þórunn jafnframt eftir fundinn í morgun.