Verkfall 700 hótelþerna hófst klukkan tíu í morgun og mun standa yfir til miðnættis. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist finna fyrir miklum stuðningi við verkfallið, þar á meðal frá stéttarfélögum víða um heim. Forstöðumenn hótela segja verkfallið þegar farið að valda tjóni.
„Það er gríðarlega mikilvægt að finna fyrir stuðningi frá félögum okkur erlendis frá og það gefur okkur byr undir báða vængi.Við göngum spennt og full tilhlökkunar inn í daginn og þökkum fyrir allar góðar kveðjur sem okkur berast,“ segir Sólveig Anna.
Á meðal þeirra sem hafa sent Eflingu baráttu- og stuðningskveðjur eru Hotell- och restaurangfacket í Svíþjóð, United Here, sem er stéttarfélag hótelstarfsmanna í Norður Ameríku og svissneska stéttarfélagið International Union of Food, Agricultural, Hotel, Restaurant, Catering, Tobacco and Allied Workers\ Associations – IUF.
Þola ekki marga daga af verkföllum
„Við þolum ekki marga daga af verkföllum. Við erum nú þegar að upplifa kólnun í greininni. Staðan er mjög viðkvæm og við þurfum að gæta að orðsporinu