Eldfjallasetur formlega í gang

Lava verkefnið, eldfjallasetur á Hvolsvelli verður sett formlega í gang næstkomandi miðvikudag. Um er að færða byggingu 3000 fermetra eldfjallaseturs en verðmæti verkefnisins er upp á nærri tvo milljarða króna. Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdarstjóri LAVA, segir að stefnt sé á að miðstöðin opni næsta sumar en í henni verða ýmis konar sýningarrými sem tengjast náttúruöflunum ásamt upplýsingamiðstöð og veitingastað. 

 

Risastór miðstöð jarðfræði og afþreyingar

Staðurinn á að verða allsherjar fræðslu- og upplifunarmiðstöð. Náttúra Íslands er í forgrunni með áherslu á jarðfræði og jarðsöguna en allt saman með eins konar skemmtigarðsívafi. Ásamt setrinu verður þarna 350 fermetra verslun Rammagerðarinnar  og  250 sæta veitingastaður.  Enn fremur verður sérstök öryggismiðstöð á sama stað. Ferðmenn munu eiga að upplifa á áhrifaríkan hátt hvernig möttulstrókurinn sem er undir Íslandi hreyfist, hitann frá honum og kraftinn.  

 

Upplifun úr iðrum jarðarinnar

Þrívíddar kvikmyndasalur verður í setrinum og þar hægt að upplifa eldgos. Í 360 gráðu salnum upplifa ferðamenn norðurljósin en tilkomumest verður líkan af möttulstróknum. Rýmið um strókinn verður 12 metrar á hæð, gestir standa á svölum, finna hitann frá stróknum og með aðstoð speglatækni horfa þeir nokkur hundruð kílómetra ofan í jörðina.  Þannig sjá þeir til að mynda hvernig landið mótaðist í upphafi.

 

Aukinn ferðamannastraumur

Búist er fastlega við því að setrið muni draga mikinn straum ferðamanna á svæðið. Rætt verður við Ásbjörn Björgvinsson á Hringbraut á þriðjudag, um þessi risastóru áform og áhrif þeirra á ferðaþjónustuna á svæðinu. Spurning er hvernig brugðist verður við auknu álagi á svæðið með uppbyggingu setursins.

Að verkefninu standa m.a. Sigmar Vilhjálmsson, þekktari sem Simmi í Hamborgarafabrikkunni og eigandi Subway á Íslandi, Gunnar Sigfússon.  Helstu fjárfestar í verkefninu er framtakssjóðurinn Icelandic Tourism Fund  en einnig Norðurflug, Eimskipafélag Íslands og Kynnisferðir.  

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála munu taka fyrstu skóflustungurnar á miðvikudaginn.