Verkalýðssagan sögð í máli og myndum

Ný fimm þátta heimildarmyndaröð um sögu verkalýðsbaráttunnar á Íslandi hefst á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þar verður rýnt í helstu sigrana á vegferð Alþýðusambands Íslands og félaganna innan raða þess frá því verkamenn bundust samtökum hér á landi í byrjun síðustu aldar.

Þættirnir eru unnir í nánu samstarfi við ASÍ, en það er Sigmundur Ernir Rúnarsson, einn reyndasti sjónvarpsmaður landsins sem hefur yfirumsjón með handriti og upptöku þáttanna sem eru hálftíma langir og sýna margar merkilegustu myndirnar úr sögu stéttabaráttunnar á Íslandi frá því að atvinnulífið einkenndist af fábreytni og erfiðisvinnu til sveita þar til þilfaraútgerðin og iðnbyltingin hóf innreið sína hér á landi með stærstu þjóðfélagsbreytingu sem orðið hefur í sögu þjóðarinnar, en sveitafólkið þyrptist þá á mölina með þeim afleiðingum að úr varð hrikalegasti húsæðisskortur sem Íslendingar höfðu kynnst um sína daga. 

Á þriðja tug viðmælenda kemur fram í þáttunum, þar af margir fyrrverandi forkólfar verkalýðsbaráttunnar á Íslandi sem muna sjálfir tímana tvenna í slagnum við atvinnurekendur og löggjafann en það var, vel að merkja, ekki síst Alþingi sem stóð í vegi fyrir auknum réttindum alþýðufólks á síðustu öld.

Í fyrsta þættinum eru húsnæðismálin tekin fyrir, annar þátturinn fjallar um samningsréttinn, sá þriðji um jafnrétti og kvennabaráttu, sá fjórði um velferðarsigrana og loks er horft til framtíðar í fimmta og síðasta þættinum og spurt hvort jafnvel enn meiri þörf verði á verkalýðsfélögum á komandi áratugum en verið hefur í heila öld.

Kvikmyndataka og klipping þáttanna er í höndum Friðþjófs Helgasonar, en það er óhætt að segja að sá þaulvani tökumaður lumi á mögnuðu myndefni frá fyrri tímum sem prýða og skreyta þáttaröðina.

Fyrsti þáttur hefst klukkan 21:00 í kvöld.