„Nú líður að því að fjöldi kjarasamninga renni út og þá reynir af alvöru á samningsvilja. Ég hef áður lýst því yfir að mér finnist kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar metnaðarfull, sem er fínt; hennar starf er að ná sem bestum samningum fram fyrir sína félaga. Mér hefur þótt sérkennilegt að sjá þá orðræðu að markmið verkalýðshreyfingarinnar sé að setja allt á hliðina. Slíkt tal gagnast engum,“
segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna í dag. Hann segir að vel sé hægt að ná saman um raunverulegar kjarabætur:
„…sérstaklega fyrir þau sem minnst hafa á milli handanna. Það á að vera metnaður hvers samfélags að við öll getum lifað mannsæmandi lífi. Nú er líka lag til að gera þannig breytingar á skatta- og bótakerfinu að þær komi sem best til móts við þau sem mest þurfa á að halda, eins og fyrstu skref hafa raunar þegar verið tekin í. Ríkisstjórnin hefur sýnt vilja sinn í verki með ýmsum aðgerðum sem eru allt mikilvægar jöfnunaraðgerðir. Þar má nefna hækkun atvinnuleysisbóta, hækkun á greiðslum úr Ábyrgðasjóði launa, hækkun barnabóta og fjölgun þeirra sem eiga rétt á þeim, hækkun á þaki á greiðslum í fæðingarorlofi fyrst úr 500 í 520 þúsund og nú um áramótin upp í 600 þúsund, leigufélag á vegum Íbúðalánasjóðs og margt fleira.“