Verkalýðsfélög fallast á grundvallaratriði kjarasamnings

Efling, VR, LÍV, Framsýn, VLFA og VLFG hafa fallist á grundvallaratriði kjarasamnings við Samtök atvinnulífsins. Verkfallsaðgerðum Eflingar og VR hefur því verið aflýst að höfðu samráði við félagsmenn og unnið er að lokagerð samnings. Þó fóru verkfallsaðgerðir strætóbílstjóra fram í morgun.

Mun vinnan að lokagerð kjarasamnings hefjast strax í dag, auk þess sem leitað verður eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Að því er kemur fram í tilkynningu frá Eflingu er aðkoma stjórnvalda mikilvægur fyrirvari um undirritun samnings þegar þar að kemur.

„Niðurstaðan í þessum viðræðum er ekki fullnaðarsigur heldur vopnahléslína milli stéttar verkafólks og stéttar auðmagnseigenda. Baráttan milli þeirra heldur áfram. Ég er sátt við að við höfum fengið fram grundvöll til þess að loka samningi eftir langar og strangar kjaraviðræður. Félagsmenn okkar hafa auðvitað síðasta orðið um hvort þeir samþykkja samning í atkvæðagreiðslu eða ekki. En ég held að með þessum samningsgrundvelli hafi náðst að koma til móts við kröfur okkar félagsmanna um lífskjarabót,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar segir stálin stinn hafa mæst á lokametrum samningagerðarinnar. „Hér skipti miklu máli pressan sem verkfallsaðgerðir okkar sköpuðu, samtakamáttur félagsmanna og sá mikli meðbyr sem við höfum fundið í samfélaginu við kröfur Eflingar og bandalagsfélaga okkar.“

Í tilkynningu Eflingar segir enn fremur að stéttarfélagið undirbúi nú áætlun um kynningu komandi samnings meðal félagsmanna, á félagsfundum og með kynningarefni. Trúnaður hvílir enn sem komið er um inntak viðræðna.