Flóabandalagið afréð á fundi sínum í gærkvöld að vísa kjaradeilu sinni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara og segja forkólfar þess að "grafalvarleg staða" sé komin upp í samskiptum launafólks við Samtök atvinnulífsins. Ríkissáttasemjari verði strax í dag að ákveða næsta skref; engin lausn sé í sjónmáli og svo mikið beri í milli kröfugerðar launafólks og þess svigrúms sem fulltrúar fyrirtækjanna telja sig hafa til að semja við lægst launaða fólkið í landinu að í reynd sé engin von að samningar takist á næstu vikum.
Forvígismaður eins verkalýðsfélagsins sem á aðild að Flóabandalaginu, en þar eru öll helstu stéttarfélög verkafólks við Faxaflóa, frá Suðurnesjum upp á Skaga, orðaði það svo í samtali við hringbraut.is í morgunsárið að sjaldan eða aldrei hafi hann fundið fyrir jafn miklum baráttuhug í sínu fólki og samstöðu á meðal þess. Fólki ofbjóði hreinlega hvernig landverkafólki sé sýnd jafn mikil óvirðing og verið hafi síðustu daga með því að afhenda því íspinna á meðan milljarðar séu greiddir út í arð fyrirtækjanna sem bíti svo höfuðið af skömminni með því að hækka laun stjórnarmanna sinna um þriðjung.
Mjög alvarleg staða er á vinnumarkaði. Verkafólk virrðist vera í meiri verkfallsham en nokkru sinni það sem af er þessari öld og háskólamenn virðast og vera jafn gráir fyrir járnum. Komi til verkfalls beggja hópa lamast íslenskt samfélag, einkum framleislugreinarnar, ferðaþjónustu og stjórnsýsla.