Verk söru riel prýðir sjávarútvegshúsið

Verk Söru Riel \"Glitur hafsins\" bar sigur úr býtum í samkeppni um nýtt útilistaverk á austurgafl Sjávarútvegshússins.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið efndi til í samkeppninnar samstarfi við Samband Íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og kallaði eftir verki með skírskotun í sögu sjávarútvegs á Íslandi. Verkið mun prýða austurgafl hússins í að minnsta kosti þrjú ár.

Það var einróma niðurstaða dómnefndar að velja verk Söru. Nafngiftin kemur reyndar ekki frá höfundi heldur lýsingu höfundar á hugmynd sinni „þarna bregður fyrir eða mótar fyrir fiski og hval, neti og öldum en allt er þetta samofið í eitt form sem umvefur sjálft sig og skapar eitthvað nýtt og óráðið. Formið er á hreyfingu, virðist skjótast upp úr jörðinni eða hafinu í átt að himninum, í átt að framtíðinni. Á efri part myndar eru litlir speglar bróderaðir inn í myndefnið. Speglarnir munu grípa ljósið og gefa verkinu tilbreytingu, endurvarpa umhverfinu og skjóta ljósgeislum því sólin skín beint á efri part gaflsins á ákveðnum tíma dags. Ljósgeislarnir vísa beint í glitur hafsins, í glerhjúp Hörpu en einnig vonarneistana sem við leitum að til að halda áfram að þróast og þroskast,“ segir í umsögn dómnefndar.

Yfirlit yfir allar tillögur í samkeppninni.