Verk og vit: árshátíð byggingageirans

Íslenski byggingargeirinn minnir á mátt sinn og megin í Laugardalshöll um helgina, en þar fer fram stórsýningin Verk og vit sem stendur fram á sunnudag og er hún opin almenningi á morgun, laugardag, svo og á sunnudag.

Mikill metnaður er lagður í sýninguna eins og vel kemur fram í klukkustundarlöngum sjónvarpsþætti sem tekinn var upp á sýningarsvæðinu i gærdag og sýndur verður á Hringbraut í kvöld en þar heimsækir Sigmundur Ernir valda bása í höllinni og ræðir aukinheldur við Ingibjörgu Grétu Gísladóttur, helsta skipuleggjanda Verks og vits.

Ríflega 120 sýnendur eru með bása á sýningunni, en hún endurspeglar ekki aðeins þverskurðinn í mannvirkjagerð á Íslandi, heldur einnig þróttinn, reynsluna og verkvitið sem þar er að finna. Básarnir eru margir hverjir engin smásmíði og má ljóst vera að fyrirtæki hafa lagt mikinn kostnað í að koma sér upp sýningaraðstöðu í höllinni.

Gönguferð um sýningarsvæðið færir gestum heim sanninn um alla þá miklu framþróun og nýjungar sem tæknivitið hefur fært byggingargeiranum á síðustu árum - og sannast þar hið fornkveðna að sjón er sögu ríkari.

Sjónvarpsþátturinn um Verk og vit hefst klukkan 20:00 í kvöld, en kvikmyndataka hans var í höndum Bjarna Svans Friðsteinssonar ogg Hauks Sigurbjörnssonar en upptökustjórn annaðist Snædís Snorradóttir ásamt umsjármannninum Sigmundi Erni Rúnarssyni.