„verk­lít­il og kjark­laus“ rík­is­stjórn

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, formaður Miðflokks­ins, gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina harðlega í ræðu sinni á flokkráðsfundi flokks­ins á Ak­ur­eyri og sagði hana bæði verk­litla og kjark­lausa. Ráðherr­ar hagi sér eins og bundið sé fyr­ir aug­un á þeim. Þeir sjái hvorki vand­mál­in sem eru uppi né þau tæki­færi sem eru fyr­ir hendi.

„Þessi rík­is­stjórn sýn­ir al­gjör­an aum­ingja­skap í því hvernig hún nálg­ast stóru verk­efni sam­fé­lags­ins,“ sagði Sig­mund­ur og nefndi að rík­is­stjórn­in væri kerf­is­stjórn sem eft­ir­láti kerf­inu að stjórna fyr­ir sig. Átti hann bæði við emb­ætt­is­manna­kerfið og fjár­mála­kerfið, þar á meðal er­lenda vog­un­ar­sjóði.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/11/03/verklitil_og_kjarklaus_rikisstjorn/