„Stóra spurningin er hvernig sumarið verður. Það er háönnin sem skiptir mestu máli fyrir greinina í heild sinni, og þar með samfélagið, til þess að ná inn þeim tekjum sem greinin skilar fyrir samfélagið,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes segir að nýjustu fréttir af WOW air og viðræðum við Indigo Partners, að frestur til þess að ná saman um fjárfestingu síðarnefnda félagsins í WOW hafi verið framlengdur um mánuð, bætist ofan á þá óvissu sem ríkir í greininni varðandi verkfallsboðanir.
„Það er mjög vont fyrir ferðaþjónustuna að hafa þessa óvissu svona lengi. Það kemur ofan í ástand á flugmarkaði almennt, sem við sjáum til dæmis í spám Isavia um fækkun flugsæta til landsins og fækkun farþega. En við vonum að þetta fari vel og að flugframboð almennt til landsins muni halda sér. Það er lykilatriðið,“ segir Jóhannes Þór við mbl.is.
Nánar á