Verk að vinna í fellahverfinu

Ómar Valdimarsson höfundur nýrrar skýrslu Rauða krossins um fátækt, segir að Breiðholtið sé ekki eina hverfið í borginni þar sem tekjulægri búa. Hins vegar er þar mesta fjölbreytni innflytjenda og hættan á fátækt sé þar mikil. Fátæktin er helst félagsleg þar sem krakkar geta ekki tekið þátt í samfélagi jafnaldra sinna og einangrast. Í skýrslunni er sérstök umfjöllun um Efra Breiðholt og stöðuna þar en Ómar vill þó varast að stimpla hverfið sem vandamál til frambúðar. Margt sé gott gert en það taki mörg ár að sjá árangur af uppbyggjandi samfélagslegum verkefnum.

Nicole Leigh Mosty er ásamt Ómari í viðtali á Þjóðbraut í kvöld á milli 21 og 22. Nicole hefur mikið látið að sér kveða í grasrótarstarfi í Breiðholti þar sem hún býr og starfar sem leikskólastjóri. Hún er enn fremunr formaður hverfaráðs Breiðholts en nýkjörin á Alþingi fyrir Bjarta framtíð. Nicole er sjálf innflytjandi frá Bandaríkjunum og segir grasrótina mikilvægasta og þótt peningar séu af skornum skammti sé margt hægt að gera til að auka samskipti ólíkra hópa í hverfinu. 

Í inngangi skýrslunnar segir að tvö prósent þjóðarinnar búi við alvarlegan skort á efnislegum gæðum. Talið er að um 10 prósent þjóðarinnar séu undir lágtekjumörkum og megi þola félagslega einangrun af þeim sökum.

Skýrsla Rauða krossins sem ber heitið Fólkið í skugganum hefur opnað augu fólks fyrir því að hér er viðvarandi fátækt sem bundin er sumum hverfum borgarinnar fremur en öðrum og mest efra Breiðholti þar sem á árum áður voru byggðar blokkir af litlum efnum fyrir illa staddar fjölskyldur.