Björt Ólafsdóttir, þingmaður BF, gagnrýndi harðlega hve lítið rynni til sameiginlegra sjóða frá útgerðinni í þingræðu í dag eða aðeins 5,3 milljarðar króna fyrir þetta ár. Aðeins helming þess sem verið hefði.
Hún sagði að verið væri að gefa útvegsmönnum auðlindina. Í ár færi veiðigjaldið aðeins í iðnaðinn sjálfan, ekkert til stofnana eða inn í sameignlega sjóði. „Leigan er 0 krónur,“ sagði Björt og nefndi sem dæmi að á sama tíma vantaði fé inn í heilbrigðisþjónustuna, eigendur þjóðarinnar fengju ekkert í sinn hlut.
Þetta væri sérstök góðvild við útgerðina því það væri ekki eins og að sjávarútvegsfyrirtæki berðust nú í bökkum. Ráðherra væri nýbúinn að hæla útgerðinni fyrir Íslandsmet í útflutningi en þjóðin nyti þess í engu.
„Ég segi bara: Takk fyrir ekkert,“ sagði Björt Ólafsdóttir.