Lokun fyrir alla umferð á Hringveginum frá Markarfljóti að Breiðamerkurlóni hefst klukkan 12:00 á hádegi. Líkur standa til að Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði verði lokað klukkan 16:00 ef veðurspá gengur eftir sem og fleiri leiðir. Kemur þetta fram í viðvörun frá Almannavarnardeild ríkisins.
Veðrið skellur fyrst á Suðurlandi. Íbúum þar er ráðlegt að vera ekki á ferðinni eftir klukkan 12:00 á hádegi. Á öðrum stöðum á landinu og þar með talið á höfuðborgarsvæðinu er ráðlegt að vera ekki á ferðinni eftir klukkan 17:00. Auk vindsins sem spáð er að nái fellibylsstyrk sums staðar verður snjókoma víða og snjóflóðahætta kann að skapast, einkum á Norðurlandi og fyrir austan.
Þá eru töluverðar líkur á rafmagnstruflunum. Það mun taka nokkurn tíma fyrir veðrið að ganga yfir og segja veðurfræðingar að veðrið sé eitt hið versta sem menn hafi séð í kortunum.
Veðurfræðingur sem Hringbraut ræddi við sagði vindstyrkinn slíkan að á árum áður hefði svona veður eins og spáð er fengið heitið mannskaðaveður. Slík heiti væru þó ekki gefin fyrr en eftir á. Vonandi yrði ekki svo að þessu sinni en kann nokkru að ráða að fólk geri hvað það geti til að auka öryggi sitt.
Fjölda viðburða hefur þegar verið aflýst út um allt land. \"Það má segja að allt samfélagið muni vonandi pakka sér inn þegar líður á daginn, nú er bara að vona það besta,\" sagði björgunarsveitarmaður sem Hringbraut ræddi við í morgun. Hann brýnir Íslendinga til að vara erlenda ferðamenn við því sem er fram undan. Vindur verður að austan, ofsa- og fárviðri. Í samtali við Ríkisútvarpið í morgun komu fram áhyggjur hjá fulltrúa Almannavarna um að vera kynni að erlendir einstaklingar fylgdust ekki með veðurspánni og væri brýnt að vara við og miðla upplýsingum.