Verður ólafur ragnar forsætisráðherra utanþingsstjórnar?

Ólafur Ragnar Grímsson mun vera þess albúinn að fara fyrir utanþingsstjórn sem forsætisráðherra, komi til stjórnarkreppu sem frekar er búist við.
 
Ef pattstaða kemur upp á Alþingi og ekki verður unnt að mynda meirihlutastjórn í nóvember, mun forseti Íslands hafa látið það berast til formanna stjórnmálaflokkanna að hann muni þá skipa utanþingsstjórn í byrjun desember. Ekki verði gefinn lengri tími til stjórnarmyndunar ef horfur verða slæmar.
 
Þessi nöfn ráðherra í utanþingsstjórn hafa verið nefnd:
 
Ólafur Ragnar Grímsson forsætisráðherra.
 
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, fjármálaráðherra.
 
Þorsteinn Pálsson atvinnuvegaráðherra (sjávarútvegs-landbúnaðar-ferðamála- og iðnaðarráðherra).
 
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og einnig umhverfisráðherra.
 
Ragnheiður Ríkharðsdóttir menntamálaráðherra.
 
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra.
 
Helgi Hjörvar félagsmálaráðherra.
 
Björg Thorarensen innanríkisráðherra (dóms-og samgönguráðherra).
 
Þannig yrði ríkisstjórnin skipuð átta ráðherrum en nú eru ellefu.
 
Eins og sjá má er hér mikið mannval á ferð. Með undirbúningi af þessu tagi er ætlunin að setja pressu á forystumenn stjórnmálaflokkanna að vinna rösklega og af fullri alvöru því þingmenn allra flokka vita ekkert verra en utanþingsstjórn.