Verður ný öld verri en sú fyrri?

\"Margir ypptu öxlum þegar bent var í byrjun 21. aldarinnar, að hún kunni að verða enn óróasamari en 20. öldin með sínar tvær heimsstyrjaldir og ótal aðrar styrjaldir.\"

Þetta skrifar Ómar Ragnarsson á bloggi sínu í dag og horfir þar jafnt um öxl sem fram á veginn. Hann bendir á að þótt mörgum hafi fundist spádómar um að trúarbrögð yrðu vaxandi undirrót illinda, hernaðar og ófara fjarstæðukenndar fyrir 15 árum, þá sé komið annað hljóð í strokkinn víða um lönd.

Mörgum sé ekki um sel: \"Það sýndist svo ólíklegt að á öld upplýsingatækni og stóraukinna samskipta þjóða gæti stefnt í eitthvað svipað ástand og ríkti í Evrópu á tímum 30 ára stríðsins og Siðaskipta. Einnig voru menn og eru enn í raun sofandi fyrir þeirri miklu hættu á alvarlegum stríðsátökum og stórfelldum nýjum vandamálum, sem breytingar á kjörum þjóða af völdum loftslagsbreytinga munu leiða af sér.\" 

Hann sé skýin hlaðast upp: \"Flóttamannaholskeflan, sem nú skellur á Evrópu, er og verður ekkert einsdæmi um ný og tröllaukin vandamál sem koma munu víða upp vegna óstöðvandi fjölgunar mannkyns, þverrandi auðlinda á næstu áratugum og átaka af völdum deilna um trúarbrögð og stjórnmálastefnur.\" 

Og sem fyrr vilji fæstir taka ábyrgð á ástandinu: \"Nú gengur sagan af litlu gulu hænunni í endurnýjun lífdaga þegar á fundum leiðtoga þjóða næst engin samstaða og kötturinn segir \"ekki ég\" og hundurinn segir \"ekki ég.\",\" skrifar Ómar á bloggi sínu í dag