Leiðtogafundurinn haldinn í svíþjóð?

Líkur hafa aukist á því að leiðtogafundur Donalds Trumps og Kim Jong Un verði haldinn í Svíþjóð, eftir að utanríkisráðherra Norður Kóreu, Ri Yong Ho, tilkynnti óvænt um komu sína til Stokkhólms í dag. Hann mun ræða við Margot Wallström utanríkisráðherra Svía.

Svíar sögðust strax á laugardag reiðubúnir að vera gestgjafar Bandaríkjanna og Norður Kóreu fyrir leiðtogafundinn þegar Stefan Löfven, forsætisráðherra bauð fram liðveislu Svíþjóðar í kjölfar fundar við Trump í Washington DC.

Svisslendingar hafa líka boðið fram aðstoð sína við leiðtogafundinn.

Utanríkisráðherrarnir ræðast við í Stokkhólmi í dag og á morgun. Meðal umræðuefna verða samskipti Kóreuríkjanna og væntanlegur leiðtogafundur. Svíar hafa getað haft milligöngu um ýmis mál sem varða samskipti við Norður Kóreu því Svíþjóð hefur sendiráð í Pyongyang en Bandaríkin ekki.