Katrín Jakobsdóttir gæti staðið frammi fyrir athyglisverðu pólitísku vandamáli á næstunni. Fyrr en síðar mun Bjarni Benediktsson draga sig í hlé og þá þarf Katrín að gera upp við sig hvort hún ætti ekki bara að skella sér í framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins. Ekki er minnsti vafi á því að hún myndi fljúga fyrirhafnarlaust í gegnum kosningarnar, svo vel og dyggilega hefur hún stutt áherslur og áhugamál Sjálfstæðismanna frá því hún tók við sem forsætisráðherra, og svo ánægðir eru Sjálfstæðismenn með hana. Ég kem heldur ekki auga á neitt stórvægilegt atriði, hvorki persónulegt né pólitískt, sem kæmi í veg fyrir að Katrín yrði formaður Sjálfstæðisflokksins. Það væri því líklega aðeins tregðulögmálið eitt sem kæmi í veg fyrir að Katrín yrði húrrahrópuð til formanns í Valhöll þegar Bjarni hverfur út á hinar eilífu sumarlendur í Flórída. Og vissulega getur tregðulögmálið verið sterkt.
Nánar á
https://stundin.is/grein/8148/