Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun sækjast eftir sæti á lista Samfylkingarinnar í komandi kosningum.
Sigríður Ingibjörg bætist þar með í hóp þeirra þingmanna Samfylkingarinnar sem hyggjast sækjast eftir endurkjöri. Það var í Þjóðbraut sem Sigríður Ingibjörg sagðist vilja halda áfram. Áður hefur Valgerður Bjarnadóttir sagt það sama á sama vettvangi.