Verður halla tómasdóttir ráðherra sjálfstæðisflokks?

Bjarni Benediktsson gaf sögusögnum um ráðherra utan þingflokks sjálfstæðismanna byr undir báða vængi í fréttum fjölmiðla í gærkvöldi þegar hann útilokaði ekki að ráðherra á vegum flokksins yrði sóttur út fyrir þingflokkinn. Sagði þó að hann stefndi ekki að því sérstaklega. Það gæti þó orðið niðurstaðan.

 
Samkvæmt heimildum Hringbrautar úr röðum sjálfstæðismanna er nafn Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda nú nefnt.  Hún náði undraverðum árangri sl. vor í forsetakosningunum og fékk um 30% fylgi sem var meira en tvöfalt á við þekkta einstaklinga eins og Davíð Oddsson og Andra Snæ Magnason. Hún var í öðru sæti á eftir Guðna forseta.
 
Sjálfstæðisflokkurinn bað Höllu að fara í prófkjör síðastliðið haust en hún afþakkaði. Halla er ekki flokksbundinn sjálfstæðismaður en er með borgaralegar skoðanir, hægri manneskja frekar en annað. 
 
Halla Tómasdóttir er þjóðþekkt eftir forsetaframboðið. Þeir sem þekkja hana vita að þar er um að ræða afar duglega og marksækna manneskju. Hún hefur einnig alþjóðlega reynsu úr stjórnunarstörfum sem ætla má að gæti komið að góðum notum, verði hún valin til að gegna ráðherradómi.
 
Ekki er búist við að flokkurinn muni sækja fyrrverandi þingmann til að gegna ráðherraembætti eins og Talað hefur verið um.
 
Halla Tómasdóttir gæti styrkt ríkisstjórnarlið nýrrar stjórnar.