Ferðaþjónusta er orðin stærsti og mikilvægasti atvinnuvegur landsins. Tíundi hver landsmaður starfar þar. Hún tekur við öllu atvinnuleysi, sem annars yrði til, þegar fólk leitar sér vinnu.
Þetta skrifar Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri á bloggi sínu og bendir þar vá vandann sem blasir við í greininni; hún vaxi jafnt og þétt en bjóði upp á ein lægstu launin sem nokkur atvinnugrein í landinu getur merkt sig við.
\"Fólk býr við misjöfn kjör í þessari grein sem öðrum. Ástæða er til að ætla, að það eigi erfitt með að gæta hagsmuna sinna í viðræðum um laun,\" skrifar Jónas og heldur áfram: \"Stéttarfélög eru hrygglaus eins og allir sáu í vor. Samt er mikilvægt, að greinin verði ekki láglaunagildra ungra kynslóða,\" og hann botnar skrif sín með þessum orðum: \"Ríkið þarf að setja reglur um lágmarkslaun. Einnig þarf ríkið að herja á svarta atvinnu í greininni. Aðeins sem alvörugrein getur ferðaþjónusta haft gildi fyrir þjóðina.\"
Búist er við því að fjórðungs fjölgun verði á erlendu ferðafólki til Íslands í ár miðað við síðasta ár, en útlit er fyrir að ein milljón og 250 þúsund túristar leggi leið sína hingað til lands í ár sem er tvöföldun á aðeins fimm árum.