Niðurstaða hefur náðst milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um áframhald stjórnarsamstarfs.
Þetta hefur Hringbraut fengið staðfest.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sagðist ekkert geta tjáð sig í samtali við blaðamann Hringbrautar fyrir nokkrum mínútum þar sem hann var á ferð í þinghúsinu. Orðrómur gengur um að hann muni gegna nýju embætti í stjórninni og jafnvel hefur verið rætt að hann verði forsætisráðherra.
Þinfglokksfundur hefur verið boðaður hjá framsóknarmönnum klukkan 18, samkvæmt heinildum Hringbrautar verður boðað til blaðamannafundar síðar í kvöld og niðurstaða kynnt.
Mótmæli eru að hefjast á Austurvelli þar sem krafan er kosningar en líkur á að vantrauststillaga minnihlutans á Alþingi muni leiða til stórra tíðinda hafa minnkað.
Hringbraut mun standa fyrir beinni útsendingu klukkan 21 í kvöld þar sem hin glænýju tíðindi verða boðuð frá ýmsum hliðum.
Styrmir Gunnarsson fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins mun rýna í stöðuna í þættinum auk þess sem rætt verður við þingmenn bæði minni- og meirihluta og púlsinn tekinn niðri í miðbæ.