Nú er rætt um þann möguleika að Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi, taki við embætti bæjarstjóra Kópavogs af Ármanni Kr. Ólafssyni leiðtoga Sjálfstæðisflokksins.
Fram hefur komið að einhverjir í hópi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins vilji síður áframhaldandi samstarf við BF/Viðreisn. Prýðilegt samstarf hefur verið milli Sjálfstæðisflokks og BF á liðnu kjörtímabili og höfðu bæði framboð uppi skýrar yfirlýsingar fyrir kosningar um að haldið yrði áfram með samstarfið ef nægur styrkur fengist í kosningunum. Flokkarnir eru samtals með 7 af 11 bæjarfulltrúum þannig að styrkurinn er nægur. Eftir kosningar hafa komið upp raddir innan Sjálfstæðsflokksins sem eru á móti þessu samstarfi.
Helsti talsmaður þess að leitað verði til annarra um samstarf er kosningastjórinn Jón Kristinn Snæhólm. Þá hefur Karen Halldórsdóttir einnig verið nefnd en hún er dóttir Halldórs Jónssonar, áður í Steypustöðinni, en hann er mikill áhrifamaður innan flokksins í Kópavogi. Verði leitað annað, þá er ekki talið að annað kæmi til greina en Framsókn. Samfylking og Píratar myndu seint ganga til samstarfs við Ármann og félaga.
Sem svar við þessum hugmyndum er til skoðunar að myndaður verði nýr meirihluti í Kópavogi sem fjórir flokkar kæmu að með 6 bæjarfulltrúa. Birki Jóni yrði þá boðið sæti bæjarstjóra sem vafalaust væri tilboð sem hann gæti ekki hafnað. Framsókn hefur einn bæjarfulltrúa, Samfylkingin 2, BF/Viðreisn 2 og Píratar 1.
Birkir Jón Jónsson hefur mikla pólitíska reynslu þó hann sé einungis 38 ára að aldri, fæddur 24. júlí 1979 á Siglufirði. Hann átti sæti á Alþingi í 10 ár fyrir Framsóknarflokkinn frá 2003 til 2013 og var meðal annars formaður fjárlaganefndar og formaður iðnaðarnefndar. Hann tók sæti í bæjarstjórn Kópavogs fyrir fjórum árum.