Orrki Hauksson, forstjóri Símans og þá um leið Sjónvarps Símans, er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Forráðamenn fimm ljósvakamiðla; Útvarps Sögu, ÍNN, 365, Símans og Hringbrautar óska þess að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði.
Þá er einnig bent á ójafnan leik fjölmiðlanna við erlendar efnisveitur, sem borga ekki skatta á Íslandi og eru þess vegna í allt annarri stöðu en íslensku fjölmiðlarnir.
Viðtalið við Orra er á dagskrá Þjóðbrautar klukkan 21:15 í kvöld.