Verðum að haga segli eftir vindum!

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur falið Byggðastofnun að meta áhrif ákvörðunar Rússa um að setja innflutningsbann á Ísland. Hann segir að íslenskt samfélag, 330 þúsund manns, þurfi í þessum efnum að haga seglum eftir vindi.
 

Sigurður Ingi Jóhannesson segir í samtalvi við RÚV í dag að mikilvægt sé að vega saman ákvarðanir vestrænna samfélaga annars vegar og hins vegar 70 ára viðskiptasögu við Rússa áður en frekari ákvarðanir séu teknar um stuðning við viðskiptaþvinganir.

\"Það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur að taka undir með þeim aðgerðum og skoðunum sem kollegar okkar í öðrum vestrænum samfélögum hafa gert,\" segir hann, en á sama tíma verði að horfa til þess að Íslendingar eigi 70 ára viðskiptasögu við Rússa. Hann segir 330 þúsund manna samfélag ávallt þurfa að haga segli eftir vindum - hagsmunir þjóðarinnar séu ávallt í fararbroddi. 

Sigurður Ingi vill ekki gefa afgerandi svar varðandi hvort rétt sé að endurskoða stuðning við viðskiptaþvinganir gegn Rússum: \"Á þessum tímapunkti finnst mér rétt að allir haldi ró sinni,“ segir Sigurður Ingi og bætir við: \"Það hefur komið fram að þetta gæti haft verulegt tjón á einstökum svæðum á landinu. Þess vegna hef ég falið Byggðastofnun að gera úttekt á áhrifum þess. Sú úttekt liggur ekki fyrir. Aðalatriðið núna er að allir haldi ró sinni og fari yfir þá heildarhagsmuni sem í húfi eru.“