Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, verður gestur Þjóðbrautar í kvöld. Hann hefur áhyggjur af afleiðingum úrskurðar kjararáðs, varðandi launahækkanir til handa forseta Íslands, ráðherrum og alþingismönnum.
Jón Þór vill að kjararáð meti betur forsendur sínar og kveði að því loknu upp annan úrskurð þar sem laun hækki ekki einsog þau gera samkvæmt nýjasta úrskurði ráðsins. Ef ekki þarf Alþingi að grípa inni og lækka launin með lagasetningu.
Jón Þór segir kjararáð ekki hafa gætt þess hverjar afleiðingarnar kunni að verða, en því beri að gera það.
Jón Þór er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld, en þátturinn er á dagskrá milli klukkan 21:00 og 21:30.
-sme