Kuldaboli er á ferð eins og stundum á þessum árstíma og nálgast nú höfuðborgarsvæðið, markvisst líkt og síðustu jólasveinarnir.
Hvergi er spáð meira frosti á landinu en í Reykjavík á jóladag samkvæmt sjálfvirkri spá Veðurstofunnar, sjá myndina að ofan. Athygli vekur að meira að segja á hálendinu er ekki spáð eins miklum kulda.
Bót er í máli að björtu hæglætisveðri er spáð um mestallt land og er útlit fyrir gott ferðaveður.