Verðum brátt tíu þúsund

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur skrifað undir samning við MCPB ehf er að mestu í eigu Burbanks Holding BV í Hollandi, um lóð undir byggingu sem mun hýsa einkarekna heilbrigðisstofnun og hótel. Lóðin er við Sólvelli í Mosfellsbæ, sem er staðsett við Hafravatnsveg.

Ekki er gert ráð fyrir að sjúklingar á fyrirhugðu sjúkrahúsi verði íslenskir, þeir komi að utan.

Haraldur segir mikla uppbyggingu vera í Mosfellsbæ og þar fjölgar íbúum ört og gerir bæjarstjórinn ráð fyrir að íbúar verði orðnir tíu þúsund á þessu ári eða því næsta.

Talsverð eftirspurn er eftir lóðum fyrir margbreytilega fyrirtæki, svo sem Íslandslíkan, sem áætlað er að verði einn hektari af stærð, vatnsverksmiðju, gagnaver og margt fleira.

Viðtal við Harald verður á dagskrá Þjóðbrautar í kvöld.