Verðum að leysa vandann

Rekstrarvandi framhaldsskólanna verður á dagskrá Þjóðbrautar í kvöld. Þingkonurnar Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir skiptust á skoðunum um málið. Þær eru sammála um margt.

Báðar segja þær ekki viðunandi að ekki verði strax gripið inn í vanda Verkmenntaskólans á Akureyri. Vitað er að fjöldi framhaldsskóla á í vanda þar sem peninga vantar til rekstursins.

Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar í kvöld og hefst klukkan 21:00.