Eftir að kvóti Hafnarnes VER var seldur til HB Granda hefur enn á ný spunnist upp umræða um hvort ekki þurfi að vera varnir fyrir byggðarlög til að halda kvótanum í héraði.
„Það þarf að breyta lögunum. Það hefur ekki tekist í sjö ár. Ekki á síðasta kjörtímabili og ekki á því sem nú er,“ sagði Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis í Þjóðbraut í gær.
Þjóðbraut hefur heimildir fyrir að fyrirtæki í Þorlákshöfn hafi gert skínandi gott kauptilboð í kvótann, en ekki fengið. Tilboði Granda, sambærilegu tilboði heimamanna, var frekar tekið og kvótinn færist þar með frá Þorlákshöfn til Vopnafjarðar.
Þegar Vísir í Grindavík hætti starfsemi á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi, sögðu þáverandi forsætisráðherra og þáverandi sjávarútvegsráðherra, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigurður Ingi Jóhansson að ef útgerðin gætti ekki að sér, yrði að breyta kvótalögunum, þannig að með valddboði yrði komið í veg fyrir slíkt, og gerðist í Þorlákshöfn. Þeir hafa ekkert tjáð sig um nýjustu kvótatilfærsluna.
Jón Gunnarsson var spurður um þetta í Þjóðbraut í gær, þar sem hann sagði ríkið ráða yfir rúmum fimmm prósentum kvótans sem hægt sé að nota til þannig aðgerða. Hann vill ekki bæta við ríkiskvótann.