Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra er gestur í Þjóðbraut í kvöld. Þar segir hann brýnt að bæta menntun hér á landi svo við getum staðið jafnfætis nágrannaþjóðum okkar.
Nú tekur okkur mun lengri tíma að ljúka menntun en nágrannaþjóðirnar. Því tapast tími og peningar.
Illugi ræðir vanda framhaldsskólanna og segir bagalegt hvernig komið er í rekstri sumra þeirra. Hann segir bjartari tíð framundan.
Viðtalið við Illuga verður á dagskrá Þjóðbrautar milli klukkan 21:00 og 22:00.