Verðtryggingin þjónar bara bönkum

Guðbergur Guðbergsson, löggiltur fasteignasali hjá Fasteignasölunni Bæ, segir verðtrygginguna eingöngu þjóna hagsmunum banka og lífeyrissjóða og það sé því með öllu óskiljanlegt að Alþingi skuli ekki taka á þessum málum.

Verðtryggingin hafi verið sett með lögum á sínum tíma og það sé því alveg jafn einfalt að taka þau lög úr gildi. Hann segir það deginum ljósara að samkeppni bankanna snúist fyrst og fremst um verðtryggðu lánin. Fólk sé farið að leita tilboða um húsnæðislán í meira mæli nú en áður og það sé fyrst þegar verðtryggðu lánin eru skoðuð, sem samkeppni bankanna verði sýnileg. Þeir stýri því að miklu leyti hvort fólk velur verðtryggð lán eða óverðtryggð og beini þeim þá fyrst og fremst að verðtryggðu lánunum, því þau eru öruggustu lánveitingarnar fyrir bankana sjálfa.

Þetta og fleira tengt húsnæðismálunum var til umræðu í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en hann má sjá hér á vef stöðvarinnar. Þar er einnig rætt um þá spá Arion banka að íbúðarverð á höfuðborgarsvæðinu muni hækka um 30% að nafnvirði fram til ársins 2018. Guðbergur segir þetta í takt við síðustu misseri en þegar talið berst að möguleikum á lækkun fasteignaverðs, segir hann margar leiðir færar til þess. Þar megi þó ekki gleyma umræðu um lækkun lóðaverðs hjá sveitarfélögunum. Þau hafi hækkað lóðarverð svo mikið síðustu árin að bara það eitt og sér, skýri meðal annars hækkandi fasteignaverð.

Þátturinn Afsal er endursýndur mánudagskvöldið kl.21:00.