Verðtryggingin er ekki vandamálið

 Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, segist á móti því að banna verðtryggingu. Hún segir verðtryggingu ekki vera orsök heldur afleiðingu efnahagsástandsins.

Ásdís segir ekkert eiga að koma í veg fyrir afnám hafta. Eins segir Ásdís að lánið hafi leikið við okkur, miklar tekjur og lágt verð á innfuttningi. Vaxtamunurinn, milli Íslands og næstu landa, hefur orðið til þess að innstreymi peninga er mikið og þess vegna hefur Seðlabankinn sett höft á erlenda peninga, til að sporna við innstreyminu.

Ásdís segir það vera enn eitt merkið um slaka stjórn efnahagsmála.

Ásdís er gestur í Þjóðbraut sem er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.