Ingólfur Gissurarson, löggiltur fasteignasali og eigandi Valhallar, segir það kjarkleysi hjá Alþingi að taka ekki á verðtryggingu húsnæðislána.
Hann segir að húsnæðislán hér á landi ættu að vera sambærileg löndunum í kringum okkur og það væri vel hægt að koma því við að svo væri. Þó þyrfti að passa að þak yrði sett á vexti, til dæmis 6%.
Þetta kom fram í þættinum Afsal, sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld og hægt er að nálgast hér á vef stöðvarinnar. Þar fer Ingólfur yfir farinn veg húsnæðislána, allt frá árinu 1985. Hann segir að þegar síðustu áratugir eru skoðaðir, sé hægt að sjá að það er of oft sem breytingar eru gerðar þannig að almenningur þarf að aðlaga sig að bankakerfinu og lífeyrissjóðum, í staðinn fyrir að þessar stofnanir aðlagi sig að fólkinu. Þess vegna væri það svo að þegar fólk loksins fær hækkun á sínum kjörum, þá er sú hækkun fljót að hverfa vegna þess að húsnæðislánin sem skipta flesta mestu máli, væru of óhagstæð. Ingólfur segir síðustu árin í byggingaframkvæmdum hafa miðast sérstaklega við stórar og dýrar eignir, sem aðeins henta fámennum kaupendahópi. Þetta væri skýringin á því að nú vantar um 2500-3000 íbúðir og þá sérstaklega fyrir ungt fólk, sem varla kæmist í gegnum greiðslumat til að geta keypt sér.
Afsal er á dagskrá Hringbrautar öll fimmtudagskvöld og sýndur einnig á mánudagskvöldum.