Allt virðist vera í hers höndum í herbúðum Manchester United. Þjálfarinn rífst við leikmenn og stjórnarmenn, besti leikmaður liðsins er orðaður frá félaginu og spilamennska liðsins hefur ekki verið góð. En þrátt fyrir slæmt gengi innan vallar hefur verðmæti þess utan vallar aldrei verið meira.
Verð á hlutabréfum félagsins náði nýjum hæðum í New York. Í ágúst hefur verð á hlutabréfum félagsins hækkað um 14%. Verðmæti Manchester United er því í kringum 4 milljarða Bandaríkjadala eða 432 milljarða íslenskra króna.
Nánar á
https://www.mbl.is/sport/enski/2018/08/22/verdmaeti_manchester_united_aldrei_meira/