Verðlaunakeppni í hungri á bylgjunni

Töluverð viðbrögð hafa orðið í samfélaginu eftir útvarpsþátt á Bylgjunni þar sem atkvæði hlustenda réðu hver væri bágstaddastur og fengi matarkörfu frá Víði. Hlustendur völdu þann sem þeir töldu í mestri neyð og hefur verið talað um „Hungurleika“ Bylgjunnar.

DV tekur málið upp og birtir m.a. ummæli Rebekku Kolbeinsdóttur á facebook en hún bendir á að það sé siðlaust og rangt að nofæra neyð fólks í markaðsskyni fyrir fjölmiðil.

Eftir því sem kemur fram breyttust reglurnar eftir að allt varð vitlaust og ákvað Víðir að gefa ekki eina matarkörfu heldur þrjár eftir að hlustendum var gert að velja milli þeirra þriggja.

DV hefur eftir umsjónarmanni útvarpsþáttarins að þarna hafi hugsanlega átt sér stað mistök, hann hafi ekki ætlað að stuða neinn, ásetningurinn hafi verið góður.