Verðlag hækk­ar næst­mest á íslandi

Verðlag hef­ur óvíða hækkað jafn mikið í Evr­ópu og á Íslandi á þess­ari öld. Ísland er í 2. sæti hvað al­mennt verðlag snert­ir, næst á eft­ir Rúm­en­íu sem sker sig úr í þessu efni.

Þetta má lesa úr nýj­um töl­um Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, ESB, um verðþróun í ESB-ríkj­un­um og á Íslandi. Al­mennt verðlag á Íslandi hef­ur hækkað um 108% á tíma­bil­inu. Til sam­an­b­urðar er hækk­un­in í ESB um 37% að meðaltali á tíma­bil­inu, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um verðlags­mál á Eurostat-svæðinu í Morg­un­blaðinu í dag.

Sé litið til und­ir­flokka verðbólgu hef­ur verð á áfengi og tób­aki hækkað um 180% á Íslandi á tíma­bil­inu. Skatta­hækk­an­ir eiga þar hlut að máli. Það skip­ar Íslandi í 5. sætið. Þá hef­ur verð á hús­næði, vatni, raf­magni, gasi og eldsneyti hækkað um 199% á Íslandi, sem er önn­ur mesta hækk­un­in í þess­um lönd­um. Af öðrum dæm­um má nefna að verð á mat­væl­um á Íslandi hækkaði um 91% á tíma­bil­inu. Það er næst­um tvö­föld­un á verðlagi. Skip­ar þetta Íslandi í fjórða sæti list­ans.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/09/06/verdlag_haekkar_naestmest_a_islandi/