Verði undanþegnar ákvæðum samkeppnislaga

Framsóknarþingmennirnir Halla Signý Kristjánsdóttir og Líneyk Anna Sævarsdóttir lögðu fram frumvarpum breytingar á búvörulögum fyrir helgi. Þar er afurðarstöðvum í kjötiðnaði gert heimilt að sameinast og gera með sér samkomulag um verkaskiptingu og annarskonar samstarf til þess að halda niðri framleiðslukostnaði, geymslukostnaði og dreifingarkostnaði á kjötvörum.

Í greinargerð segir:

„Með frumvarpinu er lögð til breyting á búvörulögum í því skyni að undanþiggja afurðastöðvar í kjötiðnaði ákvæðum samkeppnislaga.Tilgangurinn er að veita innlendum kjötiðnaði tækifæri til að hagræða og til að bregðast við ört vaxandi samkeppni að utan. Í alþjóðlegum samanburði eru innlendar afurðastöðvar í kjötiðnaði örsmáar og því ekki samkeppnishæfar við afurðastöðvar á erlendum mörkuðum sem eru mun stærri og hagkvæmari rekstrareiningar. Innlendur kjötiðnaður er engu síður í vaxandi samkeppni við afurðir frá erlendum mörkuðum. Afurðarstöðvar í kjötiðnaði geta mjög takmarkað sameinast þar sem það er í andstöðu við ákvæði samkeppnislaga. Það skilar sér í of háum rekstrarkostnaði, háu verði til neytenda og lágu afurðaverði til bænda.“

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/11/05/framsokn-vill-ad-afurdarstodvar-kjotidnadi-verdi-undarthegnar-akvaedum-samkeppnislaga/