Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,53% milli mánaða í ágúst og um 0,5% án húsnæðis. Þetta þýðir að verðlag í landinu hefur hækkað um 2,2% á síðustu tólf mánuðum.
Þetta er talsverð hækkun verðbólgunnar milli mánaða, en hún mældist 1,9 prósent í júlí. Án húsnæðisliðarins hefur verðlag hækkað um 0,7 prósent að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands í morgun.
\"Sumarútsölur eru að hluta til gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,4% (áhrif á vísitöluna 0,21%). Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,0% (0,16%) og kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,5% (0,14%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 4,0% (-0,15%),“ segir í frétt Hagstofunnar.